22.01.1948
Neðri deild: 43. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í B-deild Alþingistíðinda. (335)

51. mál, tekjuskattsviðauki 1948

Einar Olgeirsson:

Ég vil leyfa mér að vekja eftirtekt forseta á því, að þetta frv. þarf óhjákvæmilega að fara til n., þar sem ekki er hægt að afgreiða það án þess að gera breyt. á því. M.a. stendur í frv.: „Lög þessi öðlast gildi 1. jan. 1948“ — og hann er liðinn. Ég veit ekki, hvort það hefur verið ætlun ríkisstj. að afgreiða þetta mál fyrir nýár. En hvernig sem það kann að vera, þarf málið í öllu falli að fara til n. og fá sína þinglegu athugun.