22.01.1948
Neðri deild: 43. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í B-deild Alþingistíðinda. (336)

51. mál, tekjuskattsviðauki 1948

Forseti (BG):

Mér var það ljóst, að Hér var um formgalla að ræða, og ætlaði við 2. umr. málsins að benda á þetta, en annars lít ég svo á, að formgallinn sé þess eðlis, að ekki sé nauðsynlegt að tefja framgang málsins með því að vísa því til n. Ég vona, að enginn hv. þm. mæli á móti því, að orðalaginu sé breytt þannig, að í stað þess, að lögin öðlist gildi 1. jan. 1948, komi: Lög þessi öðlast þegar gildi. — Þannig þarf það auðsjáanlega að vera.