22.01.1948
Neðri deild: 43. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í B-deild Alþingistíðinda. (337)

51. mál, tekjuskattsviðauki 1948

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vil eindregið óska þess, að þetta mál fari til n. eins og það er. Og ég vil vekja eftirtekt á því, að það er vafalaust ekki gott að vita, hvaða afleiðingar það hefur, að þetta frv. er ekki samþ. fyrir 1. jan., sem sé viðvíkjandi því, hvernig það verkar á tekjur manna á þessu ári. Ég vil þess vegna eindregið óska eftir, að frv. verði vísað til fjhn.