05.11.1947
Sameinað þing: 18. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 362 í D-deild Alþingistíðinda. (3421)
18. mál, viðbótarvirkjun í Soginu og Laxá
Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson) :
Herra forseti. Ég hef litlu við að bæta það, sem ég sagði áðan, en að gefnu tilefni örfáar aths. Um það, að ríkisstj. hefði ekki enn útvegað fjárfestingarleyfi til þessara framkvæmda, sem hér um ræðir, þá er það alveg rétt, en ég lít þannig á, að málið sé ekki á því stigi enn. Mér finnst fyrst og fremst verða að tryggja það, að fyrir hendi sé nægilegt fjármagn, bæði innlent og í erlendum gjaldeyri, og þessa hlið málsins verður Alþ. að sjá um. Það munu allir ráðh. fá nóg af því til lengdar að fara lánsstofnun úr lánsstofnun til þess að biðja um nokkur hundruð þúsund króna lán til slíkra framkvæmda, auk þess sem slík lán eru alls ekki fáanleg nú. Það er tilgangslaust að skora á ríkisstj., ef Alþ. hefur ekki tryggt fjárhagshlið málsins með sínum ráðstöfunum.
Það má vel vera, að það sé dýrara að láta þessar framkvæmdir bíða, eins og þm. var að tala um, en þegar sá, sem framkvæma á, hefur ekki það afl, sem þarf, þá er ekki um neitt slíkt að ræða. Menn verða af fiskinum, þegar öngulinn vantar á færið. Ég er ekki með þessum orðum á nokkurn hátt að draga úr, að þessum framkvæmdum verði hraðað eftir föngum, þvert á móti hef ég bæði embættislegan og persónulegan áhuga á, að þetta gangi sem bezt. Ég vona, að það takist að leysa þessi mál, og eins og ég tók fram áðan, mun ég senda fjvn. skýrslu um það, hvernig þessi mál standa, og á þeim grundvelli ræða við hana um úrlausn, sem við teldum sameiginlega bezta.