05.12.1947
Sameinað þing: 28. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 365 í D-deild Alþingistíðinda. (3428)

19. mál, benzínskömmtun og söluskattur af benzíni til einkabifreiða

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. Ég leyfi mér að spyrja hv. fjvn., hvað líði afgreiðslu þáltill., sem ég flutti í byrjun þingsins. Hún var um fyrirkomulag benzínskömmtunar og söluskatt af benzíni til einkabifreiða. Nú vil ég æskja þess, að hv. n. geri grein fyrir afgreiðslu málsins, en hún hefur ekki enn gefið út nál. Annar flm. þessarar till. á nú sæti í n., en hann var ekki við, er ég hóf mál mitt. Vona ég, að hann geti gefið mér upplýsingar um afdrif málsins í nefndinni.