05.12.1947
Sameinað þing: 28. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 437 í D-deild Alþingistíðinda. (3564)
58. mál, fávitahælið á Kleppjárnsreykjum
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) :
Það er fátt, sem er nauðsynlegra í heilbrigðismálum þjóðarinnar en að koma upp fávitahæli, og býst ég við, að flestir séu sammála um það. Nú er á fjárlfrv. eftir minni till. nokkur fjárveiting í þessu skyni á næsta ári og meiningin er sú, að hafizt sé handa á næsta ári um byggingu hælis. Ekki er enn ákveðið, hvar þetta hæli skuli byggja, en aðallega koma til greina tveir staðir. Annar er sá, sem minnzt er á í þáltill. þeirri, sem hér er til umr., en hinn staðurinn, sem til greina kemur, er Kópavogur. Nú geta komið til greina fleiri staðir, en það fyrsta, sem til greina kemur, er það, að dýrt er að koma upp fávitahæli. Það þarf að vera í nokkrum deildum, því að það þarf að skipta sjúklingunum eftir kynjum og aldri, það þarf aðstöðu fyrir starfsfólkið og sameiginlegan stað fyrir hin sameiginlegu verk. Æskilegast væri, að hægt væri að byggja fávitahælið þannig, að það væru mörg smá hús utan um eitt stórt hús, sem væri miðstöð alls. Nú er í Kópavogi allmikið hús, sem bráðlega væri hægt að fá til þess að vera sem uppistaða í slíku hæli, og væri þá hægt að spara stórkostlega mikinn stofnkostnað með því að byggja utan um það. Þetta hefur verið mjög til athugunar, en því hefur ekki verið slegið föstu. Það hefur ýmsa kosti að hafa hælið þarna, en líka marga annmarka. Sama má segja um Kleppjárnsreyki. Sá staður hefur einnig marga kosti, en líka annmarka. Þar er líka hús, en miklu minna en í Kópavogi, svo að það er líklegt, að þar yrði meiri stofnkostnaður. En áður en n. segir sína skoðun, vildi ég gjarna eiga tal við hana ásamt þeim, sem hafa áhuga á þessu máli, því að það er ætlun okkar í ráðuneytinu, að þessir möguleikar báðir séu athugaðir, áður en tekin er ákvörðun um þetta.