26.11.1947
Sameinað þing: 25. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í D-deild Alþingistíðinda. (3616)

89. mál, síldarrannsóknir

Flm. (Finnur Jónsson) :

Herra forseti. Það vill nú svo til, að ég hef í raun og veru fengið ádrátt hjá hæstv. sjútvmrh. um, að hann muni nú þegar í stað láta hefja undirbúning þeirrar rannsóknar, sem lögð er til, að gerð verði, í þessari till. til þál. Ég get þess vegna fallið frá að gera frekari grein fyrir málinu en gert er í grg. með þáltill. að öðru leyti en því, að ég vil taka fram, að ég álít, að kostnaður við þá framkvæmd, sem þáltill. gerir ráð fyrir, mundi verða um 100 þús. kr. á mánuði. Ég mun hafa samband við form. fjvn., sem væntanlega fær þessa þáltill. til athugunar, og óska ég þess, að hún komist sem fyrst til hv. fjvn.