03.02.1948
Neðri deild: 50. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í B-deild Alþingistíðinda. (362)

146. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1948

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það leiðir af sjálfu sér, eins og hæstv. forsrh. sagði, að samkomudegi reglulegs Alþ. verði frestað eins og gert hefur verið oft undanfarið. Ég álít ekki nema eðlilegt, að till. komi fram um 1. sept. og 15. sept., eins og undanfarið, en hins vegar hafði Sósfl. ekki till. um það síðast þegar málið var til umr. Ég álít hins vegar, að allshn. ætti að fá tækifæri til að athuga, hvort þær skoðanir eru uppi í flokkunum, að heppilegra sé að hafa samkomudaginn fyrr. Ég vil því gera till. um, að málið fari til allshn.