08.12.1947
Sameinað þing: 29. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í D-deild Alþingistíðinda. (3658)

105. mál, Faxaflóasíld

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. 1. flm. er ekki staddur hér í svipinn, en hann ætlaði sjálfur að hafa framsögu í málinu. Ég vil því fara fram á það við hæstv. forseta, að hann bíði með að taka málið fyrir, unz 1. flm. kemur, ef ekki þarf lengi að bíða eftir honum, ella, mun ég hafa framsögu, ef hann getur ekki mætt. En nú sé ég, að hv. 1. flm. er að koma inn í deildina.