11.12.1947
Sameinað þing: 30. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í D-deild Alþingistíðinda. (3666)

105. mál, Faxaflóasíld

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Það er eins og hæstv. forseti hefur tekið fram, að 1. flm. er ekki viðstaddur, en ég býst nú við, að hann komi bráðlega. En þegar þessi rökst. dagskrá kemur nú fram og er ekki einu sinni prentuð, þá er einkennilegt, að það skuli liggja svo mjög á að bera hana upp til framhaldsumræðu. Ég vil því fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann fresti þessu um sinn, í dag að minnsta kosti eða þar til unnizt hefur tími til að útbýta þessari till.