22.10.1947
Sameinað þing: 12. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 511 í D-deild Alþingistíðinda. (3740)
32. mál, áfengi með niðursettu verði
Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson) :
Ég er þakklátur hæstv. fjmrh. fyrir þá skýrslu, sem hann hefur gefið og er sjálfsagt eins ýtarleg og fært er, þó að það hefði skipt máli að fá að vita um fyrsta liðinn, hvað snemma þessi aðalundanþága hefur verið veitt, en ég læt það niður falla. Það virðist vera mjög gamalt, að forsrh. hafi haft þessa risnu, og hefur verið gerð grein fyrir því annars staðar, hvernig það er til komið.
Ég vil á þessu stigi málsins benda á það, að þegar svo er komið, að a. m. k. 10 æðstu menn landsins: forseti Íslands, forsrh. og hans 5 meðráðh., 3 forsetar Alþ. og þar við bætist a. m. k. forstjóri Áfengisverzlunar ríkisins — hafa undanþáguheimild, þá er hér um mjög athugaverða ráðabreytni að ræða, sem ég hef ekki tíma eða löngun til að fjölyrða um, þar sem hér er aðeins um fsp. að ræða. En ég vil þó aðeins benda á það nú þegar, að ef t. d. allir ráðh. eiga að hafa þennan rétt, þó að vitanlega hafi aðeins einn þeirra risnu, og ef alþingisforsetar eiga að hafa þennan rétt, þó að það sé vitað, að þeir hafa enga risnu, og ef forstjóri áfengisverzlunarinnar á að hafa þennan rétt, þá verð ég að segja, að mér sýnist vera stutt skref yfir í það, að t. d. skrifstofustjóri Alþ., skrifstofustjórar stjórnarráðsins, sýslumenn landsins, forseti hæstaréttar og nú síðast sú mikla stofnun, fjárhagsráð, sem ræður eiginlega yfir ráðherrum, eigi að hafa þessar undanþágur. Ef þessu skipulagi verður haldið áfram, þá þykir mér ósennilegt annað en að miklu fleiri komi þarna til greina, og mundi mér þá ekki þykja ólíklegt, að allir alþm. segðu, að þeir hefðu sömu risnuskyldu og risnuþörf eins og forsetarnir.
Ég vil að síðustu benda á það, að það eru frekar leiðinlegar fréttir, sem bárust í gær í útvarpinu, að tæplega 40 unglingar á Akureyri, sem komu ölvaðir af gleðisamkomu, hefðu ráðizt á lögregluna. og hegðað sér þannig, að þeir eiga skilið að fara í fangelsi. Ég ætla aðeins að enda þessa fsp. með því að segja: Þetta er það, sem gerist úti um allt land í sambandi við vínið, og það er athugavert fyrir þá, sem fengu þessa undanþágu og sitja í mestu valdastöðum þjóðfélagsins, hvort þessir unglingar á Akureyri geta sagt: Við leikum höfðingjana í Reykjavík — við borgum bara sjálfir fyrir okkar vín.