29.10.1947
Sameinað þing: 16. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 519 í D-deild Alþingistíðinda. (3752)

900. mál, starfskerfi og rekstrargjöld ríkisins

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Í sambandi við svar hæstv. fjmrh. vil ég benda á, að í byrjun þessa þings sendi fjvn. fjmrn. bréf, þar sem hún óskaði eftir að fá upplýsingar um og sundurliðun á launum, verðlagsuppbót og aukagreiðslum til starfsmanna. ríkisins og ríkisstofnana, og var óskað eftir svari fyrir lok þessa mánaðar. Það hefur enn eigi borizt, en ég tel, að þetta sé þó fyrsta sporið til að átta sig á því, hvort hægt sé að framkvæma þessa athugun, sem hér um ræðir. Ég vildi nú heyra það frá hæstv. ráðh., hvort fjvn. má vænta þess að fá þessi gögn fyrir tilskilinn tíma.