29.10.1947
Sameinað þing: 16. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 519 í D-deild Alþingistíðinda. (3753)
900. mál, starfskerfi og rekstrargjöld ríkisins
Pétur Ottesen:
Herra forseti. Það hefur nú komið í ljós af svari hæstv. fjmrh., að ekkert hefur verið gert til að framkvæma þál. þá, sem flutt var af fjvn. og samþ. árið 1945, fyrr en nú í september, að n. er skipuð í þessu skyni, og með tilliti til verkefnis tillögunnar mun sú athugun ekki koma til kasta þessa Alþ., nema það sitji því lengur. Starf ríkisstj. samkvæmt þáltill. er margbrotið og mikið. Farið er fram á, að ríkisstj. láti athuga, hvort ekki megi sameina einhverjar ríkisstofnanir og hvort ekki sé hægt að taka upp aukna tækni og hagkvæmari vinnubrögð í stofnunum ríkisins. Enn fremur að taka upp allsherjar eftirlit með vinnubrögðum í ríkisstofnunum og meta starfsmannaþörf stofnananna og athuga, hversu mikið sé þar um eftirvinnu og ráða til þessarar athugunar sérstakan mann. Einnig að reynt sé að gera innheimtu tolla og skatta umfangsminni og athuga um leið, hvaða formbreytingar á skattalöggjöfinni þyrfti að gera, til þess að svo gæti orðið. Ég sé af upplýsingum þeim, sem hæstv. fjmrh. gaf, að erfitt mun að sækja upplýsingar til stofnananna sjálfra. En það kemur til af því, að ríkisstj. hefur vanrækt að framkvæma það atriði till. að hafa þar sérstakan eftirlitsmann með vinnubrögðum og starfstíma. Það var meiningin að fela þetta eftirlit fróðum manni og að hann við rannsóknir sínar drægi sínar ályktanir og legði síðan brtt. sínar fyrir hæstv. ríkisstj. Ef þetta hefði verið gert, þá hefði ríkisstj. nú haft góðan aðgang að fróðum manni og þyrfti ekki að leita til starfsmannanna sjálfra eftir upplýsingum. Og þegar leitað er til forstjóra stofnananna, þá eru venjulega ekki miklar till. til breytinga, sem þeir hafa að gera. Það er góðra gjalda vert, að ríkisstj. hefur skipað n. til að fjalla um þessi mál, en málið er raunar svo síðbúið, að Alþ. mun nú ekki gefast kostur á að gera nauðsynlegar ráðstafanir, en þær verða þó væntanlega gerðar, áður en mjög langt um líður, og segja má um þétta, að hálfnað er verk, þá hafið er.