18.02.1948
Sameinað þing: 45. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 581 í D-deild Alþingistíðinda. (3882)

156. mál, þjóðleikhúsið

Páll Zóphóníasson:

Í sambandi við þessa fsp. vildi ég spyrja hæstv. ríkisstj. um það, sem ég hefði kannske átt að vita, hvort reikningar eins og þessi séu ekki endurskoðaðir árlega eins og landsreikningurinn. Og ef það skyldi ekki vera, langar mig til að beina því til hæstv. ríkisstj., hvort það væri ekki rétt að láta gera það.