25.02.1948
Sameinað þing: 47. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í D-deild Alþingistíðinda. (3907)
909. mál, bifreiðaeign ríkissjóðs, opinberra stofnana og ríkisfyrirtækja
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson) :
Herra forseti. Út af þessum síðustu umr. vil ég vísa til þess, að fyrirspyrjendur spyrja einungis um bifreiðar, sem eru eign ríkissjóðs, og sá maður, sem ég fól að rannsaka þetta mál, hefur því ekki leitað upplýsinga nema um bifreiðar, sem eru í eigu ríkis og ríkisstofnana. Að öðru leyti er það þegar fram tekið af mér, að þær upplýsingar, sem hér lægju fyrir, væru þannig, að þær væru ekki fullnægjandi, af því að málið er enn í athugun, og getur vel verið, að þar eigi eitthvað eftir að upplýsast, sem ég hef ekki á þessu augnabliki eða á þessum lista. Þegar að því kemur, að sparnaðarn. hefur skilað áliti sínu um bifreiðar þessar, verður auðveldur aðgangur að því fyrir sérhvern hv. þm. að kynna sér þetta mál nánar.