17.03.1948
Sameinað þing: 55. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 619 í D-deild Alþingistíðinda. (3941)

181. mál, njósnir Þjóðverja á Íslandi

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Herra forseti. Hv. þm. Str. þóttist vera undrandi á því, sem ég sagði áðan. (HermJ: Ég hélt, að ráðh. myndi betur.) Ég man ekki, hvenær ég sá þessi bréf fyrst, það má hver lá mér það, sem vill, en ég man það ekki nákvæmlega. Ég upplýsti það eina, sem ég gat, að bréfin bárust ekki til mín og að þrjú þeirra voru komin áður en ég varð ráðh., og ég er alveg hissa á því, að hv. þm. Str. skuli vera það undrunarefni, að ég segi það eina, sem ég get sagt, og bæti þar engu við.