15.03.1948
Efri deild: 78. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 351 í B-deild Alþingistíðinda. (463)
23. mál, bændaskólar
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég lýsti um dagir.n, að ég mundi bera fram brtt. við 3. gr. frv. á þskj. 179 við það, að það skyldi lögboðið, að heimilt sé að reisa á landi skólajarðanna nýbýli. Ég legg til, að gr. sé felld niður, og vil leyfa mér að leggja fram skrifl. brtt. um það. Þegar lagafyrirmæli eru til um það, hvernig reisa skuli nýbýli í landinu og að ríkissjóður skuli veita ríflegan styrk til slíkra framkvæmda, þá sé ég enga ástæðu til að setja inn í þessi l. fyrirmæli um það, að á ríkisins kostnað skuli reisa nýbýli á skólajörðunum.