01.10.1947
Sameinað þing: 0. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í B-deild Alþingistíðinda. (5)

Drengskaparheit unnið

Aldursforseti (BK):

Ríkisstj. hefur óskað þess, að ekki verði gengið til forsetakjörs í dag. Verður það sennilega á morgun og þá auglýst með dagskrá. Fleira verður ekki tekið fyrir að þessu sinni.

Fimmtudaginn 2. október, kl. 11/2 miðdegis, var fundinum fram haldið. Áki Jakobsson, þm. Siglf., og Ingólfur Jónsson, 2. þm. Rang., voru nú til þings komnir, og sóttu fundinn allir þingmenn, sem til þings voru komnir.

Aldursforseti kvaddi sér til aðstoðar sem fundarskrifara þá Sigurð Kristjánsson, 5. þm. Reykv., og Skúla Guðmundsson, þm. V.-Húnv.