18.03.1948
Neðri deild: 75. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í B-deild Alþingistíðinda. (626)
12. mál, útflutningur og innflutningur á íslenzkum og erlendum gjaldeyri
Jóhann Hafstein:
Út af því, sem fram hefur komið, vil ég bæta því við, að í brtt. fjhn. á þskj. 528 er gert ráð fyrir því, að einstaklingar geti samið um slíkt, en það er að vísu með þeim fyrirvara, að samþykki íslenzkra gjaldeyrisyfirvalda komi til hverju sinni. Og við litum svo á, að það gæti farið eftir ýmsum atvikum, hvort menn fengju samþykki til þess, og menn hefðu mismunandi greiðan aðgang að gjaldeyrisyfirvöldunum. Og þetta yrði í framkvæmdinni miklu þunglamalegra en ástæða væri til og mjög ólík aðstaða, sem einstaklingar hefðu til þess að afla þessa samþykkis. Við töldum, að í þessu fælist engin sérstök hætta um misnotkun á gjaldeyri, þó að einstaklingur hefði samið á þennan hátt um uppihald.
Það, sem skilur hér á milli, er, að við viljum hafa þetta alveg laust og að einstaklingar þurfi ekki að sækja til yfirvaldanna við mjög mismunandi skilyrði.