20.02.1948
Neðri deild: 61. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (656)

61. mál, sementsverksmiðja

Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):

Herra forseti. Ég get ekki skilið annað, ef hv. þm. sósíalista hafa þann áhuga fyrir þessu máli sem þeir vilja vera láta, en þeir geti gengið inn á till. hv. frsm. iðnn.. því að það er frekar til að tefja málið að fresta 2. umr. þar til áætlun fjárhagsráðs liggur fyrir. og betra að hafa þá heldur þokað því einum spöl lengra en skemmra.