27.02.1948
Neðri deild: 65. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 443 í B-deild Alþingistíðinda. (677)
61. mál, sementsverksmiðja
Áki Jakobsson:
Herra forseti. Það var misskilningur, að ég skoraði á hv. þm. í almennar umr. um fjármálastefnu Landsbankans. Ég bara sagði við hv. þm., þegar þessi hv. þm. sagði, að þessi stofnun hefði beitt valdi sinu gálauslega, þá skoraði ég á hv. þm. að nefna, við hvaða mál hv. þm. ætti. það var ekkert annað. Ég stóð upp til að leiðrétta þennan misskilning, og ég vænti, að hv. þm. geti nefnt það, sem hér er um að ræða. Þá hefur hv. þm. leyfi til þess að láta sér þannig orð um munn fara. Annars eru þau ómerkilegt fleipur.