16.03.1948
Efri deild: 79. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í B-deild Alþingistíðinda. (687)

61. mál, sementsverksmiðja

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Eins og kemur fram í nál., gat ég ekki tekið þátt í afgreiðslu þessa máls í iðnn. vegna anna við afgreiðslu fjárlagafrv. Ég vildi því mega fara þess á leit við hv. frsm. og hv. form. iðnn., hvort þeir vildu ekki taka frv. aftur til athugunar á þessu stigi málsins og halda a.m.k. einn fund með mér í iðnn. um málið og gefa mér tækifæri til þess að bera fram þær brtt. og þær aths. við frv., sem ég þá kynni að óska. Og fyrr en ég heyri undirtektir undir þessa ósk mína mun ég ekki halda áfram að ræða málið. Sé því neitað, mun ég að sjálfsögðu mæla fyrir brtt. mínum hér.