18.03.1948
Efri deild: 81. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 464 í B-deild Alþingistíðinda. (703)
61. mál, sementsverksmiðja
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég hef nú ekki fylgzt vel með þessu máli og ekki blandað mér mikið í umr., en ég er hræddur um, að hér sé verið að deila um keisarans skegg. Ef það er rétt, að samkomulag hafi orðið um brtt. við 1. g.r., sem umr. bera með sér, þá skilst mér við lestur frv., að það sé ótvírætt, að ef orðin „við Önundarfjörð“ séu felld úr frv., þá sé það algerlega á valdi ríkisstj. að velja verksmiðjunni stað, og þeir, sem gengið hafa til samkomulags um að fella þessi orð niður, hafa þar með fallizt á að láta ríkisstj. ráða staðarvalinu. Skoðað út frá því sjónarmiði, að samkomulag hafi orðið um þessa breyt. á 1. gr., er vægast sagt einkennilegt, hvernig lagt er til, að 4. gr. sé nú breytt. Að 1. gr. breyttri, en 4. gr. óbreyttri, getur enginn lögfræðingur skilið annað en ríkisstj. hafi staðarvalið í hendi sér. Það er því óvinafagnaður að bera fram þessa brtt. við 4. gr. og vera að deila um þetta, ef samkomulag hefur áður orðið um breyt. á 1. gr. Ég mun því greiða atkv. á móti brtt. við 4. gr., og þá auðvitað á þeim grundvelli, að ríkisstj. ráði ein staðarvalinu, ef hún ræðst í þessa framkvæmd. Þeir, sem raunverulega voru á móti því, hefðu átt að athuga það áður en samkomulag varð um breyt. á 1. gr., en nú er óeðlilegt að vekja þessar deilur upp, og úr því sem komið er, væri ekkert réttara en að afturkalla brtt. við 4. gr.