15.03.1948
Efri deild: 78. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 473 í B-deild Alþingistíðinda. (714)

135. mál, dýrtíðarráðstafanir

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Ég vil þakka hv. n. fyrir afgreiðslu hennar á þessu máli og kannast við það samkomulag, sem frsm. vísaði til, varðandi tvö atriði, er hann sagði,.að ég hefði lofað að leiðrétta í framkvæmd, en það eru kartöflurnar og tilbúni áburðurinn. Ég hef ekki annað að segja, en vona aðeins, að þetta mál gangi áfram í hv. d.