22.03.1948
Neðri deild: 78. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í B-deild Alþingistíðinda. (726)

135. mál, dýrtíðarráðstafanir

Frsm. (Jóhann Hafstein):

Þetta frv. er staðfesting á bráðabirgðalögum, og eftir að hafa athugað það leggur n. til að frv. verði samþ. óbreytt. Ég sé ekki ástæðu til að ræða málið frekar, en vil geta þess, að í 1. gr. stendur „fyrsta málsgr.“, en ætti að vera „1. liður“. Við litum svo á, að laga mætti þetta í prentuninni. Ég legg til fyrir hönd n., að frv. verði samþ.