15.03.1948
Efri deild: 78. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 487 í B-deild Alþingistíðinda. (740)

187. mál, síldarvinnslutæki o.fl.

Páll Zóphóníasson:

Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin við mínum spurningum. En ég vildi mælast til þess við þá, sem að þessu máli standa, að þeir athugi, hvort ekki er ástæða til þess að hafa skipið þannig, að búast megi við sæmilegum afköstum af því. Enn fremur bið ég n. að athuga, hvort ekki er rétt að hafa lántökuna hærri en þá, sem hæstv. ráðh. upplýsti, fyrst ríkisstj. fær lán í Englandi fyrir þessa tvo flóabáta, og hvort það er þá ekki eins gott að hafa það stærra heldur en að vera með mörg smá lán. — Ég bið n. að athuga þetta.