01.10.1947
Sameinað þing: 0. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (8)
Forseti Ísland setur þingið
Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til alþingishússins, fundarsals neðri deildar. Þessir þingmenn voru til þings komnir:
1. Ásmundur Sigurðsson, 8. landsk. þm.
2. Barði Guðmundsson, 9. landsk. þm.
3. Bernharð Stefánsson, 1. þm. Eyf.
4. Bjarni Ásgeirsson, þm. Mýr.
5. Bjarni Benediktsson, 10. landsk. þm.
6. Björn Kristjánsson, þm. N.-Þ.
7. Brynjólfur Bjarnason, 4. landsk. þm.
8. Einar Olgeirsson, 2. þm. Reykv.
9. Eiríkur Einarsson, 2. þm. Árn.
10. Emil Jónsson, þm. Hafnf.
11. Eysteinn Jónsson, 1. þm. S.-M.
12. Finnur Jónsson, þm. Ísaf.
13. Gísli Jónsson, þm. Barð.
14. Guðmundur Í. Guðmundsson, 7. landsk. þm.
15. Gunnar Thoroddsen, þm. Snæf.
16. Gylfi Þ. Gíslason, 4. þm. Reykv.
17. Halldór Ásgrímsson, 2. þm. N.-M.
18. Hallgrímur Benediktsson, 3. þm. Reykv.
19. Helgi Jónasson, 1. þm. Rang,
20. Hermann Guðmundsson, 11. landsk. þm.
21. Jóhann Hafstein, 7. þm. Reykv.
22. Jóhann Jósefsson, þm. Vestm.
23. Jón Gíslason, þm. V.-Sk.
24. Jón Pálmason, þm. A.-Húnv.
25. Jón Sigurðsson, 2. þm. Skagf.
26. Jónas Jónsson, þm. S.-Þ.
27. Jörundur Brynjólfsson, 1. þm. Árn.
28. Katrín Thoroddsen, 2. landsk. þm.
29. Lárus Jóhannesson, þm. Seyðf.
30. Lúðvík Jósefsson, 2. þm. S.-M.
31. Páll Zóphóníasson, 1. þm. N.-M.
32. Páll Þorsteinsson, þm. A.-Sk.
33. Pétur Magnússon, 1. þm. Reykv.
34. Pétur Ottesen, þm. Borgf.
35. Sigfús Sigurhjartarson, 6. þm. Reykv.
36. Sigurður Bjarnason, þm. N.-Ísf.
37. Sigurður Guðnason, 8. þm. Reykv.
38. Sigurður E. Hlíðar, þm. Ak.
39. Sigurður Kristjánsson, 5. þm. Reykv.
40. Sigurjón Á. Ólafsson, 1. landsk. þm.
41. Skúli Guðmundsson, þm. V.- 13únv.
42. Stefán Jóh. Stefánsson, 5. landsk. þm.
43. Stefán Stefánsson, 2. þm. Eyf.
44. Steingrímur Aðalsteinsson, 6. landsk. þm.
45. Steingrímur Steinþórsson, 1. þm. Skagf.
46. Þorsteinn Þorsteinsson, þm. Dal.
Voru framantaldir þingmenn allir á fundi, nema Sigurður Kristjánsson, 5. þm. Reykv. Ókomnir voru til þings:
1. Áki Jakobsson, þm. Siglf.
2. Ásgeir Ásgeirsson, þm. V.-Ísf.
3. Hannibal Valdimarsson, 3. landsk. þm.
4. Hermann Jónasson, þm. Str.
5. Ingólfur Jónsson, 2. þm. Rang.
6. Ólafur Thors, þm. G.-K.
Forseti Íslands setur þingið.
Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis, kom forseti Íslands, Sveinn Björnsson, inn í salinn og gekk til ræðustóls. Las hann upp forsetabréf, dags. 19. sept. 1947, er stefnir reglulegu Alþingi til fundar miðvikudaginn 1. október 1947.
Samkvæmt þessu forsetabréfi lýsti forseti yfir því að Alþingi væri sett, og mælti síðan:
„Frá endurreisn Alþingis fyrir 104 árum er þetta 82. samkoma þess, en frá því er það fékk aftur í hendur löggjafarvald fyrir 73 árum, er þetta þing hið 67. í röðinni, en 50. aðalþing.
Ég vil biðja alþingismenn að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum sínum.“
Þingheimur stóð upp, og forsætisráðherra, Stefán Jóh. Stefánsson, mælti: „Lifi Ísland.“ Var tekið undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.
Forseti kvaddi nú elzta þingmanninn, Björn Kristjánsson, Þm. N.-Þ., til þess að stýra fundi, þar til er kosinn væri forseti sameinaðs þings. Gekk forseti Íslands síðan út úr salnum.
Aldursforseti gekk þá til forsetastóls, tók við fundarstjórn og kvaddi sér til aðstoðar sem fundarskrifara þá Lárus Jóhannesson, ]nn. Seyðf., og Skúla Guðmundsson, þm. V.- Húnv.