19.03.1948
Sameinað þing: 57. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 713 í B-deild Alþingistíðinda. (926)

129. mál, fjárlög 1948

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):

Ég mótmæli því, að ég hafi átt nokkra sök. N. var klofin um málið og meiri hl. n. bar að bera fram till., en ég var í minni hl. — Ég vil hins vegar þakka hv. 1. þm. Rang. fyrir það mikla traust, sem hann hefur á mér, ef hann heldur, að ég geti haft alla fjvn. í vasanum, en ég er ekki viss um, að allir vilji undirstrika það. Ég vil aðeins beina því til hæstv. ráðh., að þessi till. var samþ. með 5 atkv. í fjvn., en aðrir voru á móti, og að það var ekki óskiptur meiri hl. um, að ríkisstj. mætti láta fara fram þessi kaup.