23.03.1948
Neðri deild: 83. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 838 í B-deild Alþingistíðinda. (989)

182. mál, verndun fiskimiða landgrunnsins

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. yfirlýsingu hans, og skil ég vel, að hann getur ekki svarað fyrir hæstv. utanrrh., og er það satt að segja slæmt, að hann skuli ekki vera hér viðstaddur. Ég verð að treysta því, að sá háttur verði hafður á, að samráð verði haft við utanrmn. og reynt að fá þar samkomulag um málið.