10.05.1949
Neðri deild: 105. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 667 í B-deild Alþingistíðinda. (1056)

195. mál, Marshallaðstoðin

Axel Guðmundsson:

Herra forseti. Ég er einn af meiri hl. fjhn., sem hélt fund um málið, og var meiri hl. sammála um að samþykkja frv. Frsm. meiri hl. er ekki viðstaddur, og vil ég því aðeins skýra frá þessu fyrir hönd meiri hl. nefndarinnar.