17.05.1949
Efri deild: 112. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (1251)

23. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra

Gísli Jónsson:

Það er nú sjáanlegt, að það er búið að fara þannig með þetta frv., að það kemst ekki til framkvæmda fyrr en í árslok 1950, og staðfestir það aðeins það, sem ég hef áður sagt, að þetta hefur verið einn loddaraleikur frá hendi menntmrh. Sit ég því hjá við atkvgr.