17.05.1949
Efri deild: 112. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (1253)

23. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra

Lárus Jóhannesson:

Ég álít, að þetta mál sé nú stórspillt, eins og það er á sig komið, og er það til að sýna vilja yfirstjórnar heilbrigðismálanna til þess. En í þeirri von, að á næsta ári verði hægt að bæta um þetta mál og einnig heilbrigðisstjórnina, þá segi ég já.