16.05.1949
Neðri deild: 110. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 820 í B-deild Alþingistíðinda. (1263)
180. mál, fiskiðjuver í Reykjavík
Sigurður Kristjánsson:
Herra forseti. Ég skal ekki tefja tímann, sérstaklega vegna þess, að ég taldi, að ég mundi fá tækifæri til að tala um þetta fyrirtæki í öðru máli, þar sem ég hef flutt með öðrum hv. þm. till. um, að fyrirtækið væri selt. Ég skal því ekki bæta miklu við þær umr., sem orðnar eru og einnig vegna þess, að hv. frsm. og hæstv. fjmrh. hafa rætt ýtarlega um fyrirtækið, fjárhagsástæður þess og rekstur. Ég legg svo mikla áherzlu á, að reynt verði að selja þetta fyrirtæki, að ég hefði hiklaust verið með því að heimila, að 10. gr. hefði verið gerð miklu rýmri. Ég gerði samt engan ágreining, eins og hv. frsm. tók fram, en ef n. hefði orðið sammála um að rýmka þessa söluheimild nokkuð, þá hefði ég orðið meðflm. að þeirri till. Ég vildi láta það koma fram hér, að ég hefði kosið, að heimildin hefði verið svo rúm, að það hefði verið heimilt að selja þetta fyrirtæki hverjum sem var.