16.05.1949
Efri deild: 111. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 824 í B-deild Alþingistíðinda. (1279)

180. mál, fiskiðjuver í Reykjavík

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Út af ræðu hæstv. ráðh. vil ég skýra frá því, að ég sé mér ekki fært að ljúka afgreiðslu málsins á kvöldfundi. Þetta er afar mikið deilumál og hefur ekki komið hér fyrr en á síðustu stundu. Ef til vill vill hæstv. fjmrh. láta leita atkv. um það, hvort hægt sé að láta málið fara til 2. umr. án þess að það fari í n. Ég sé mér engan veginn fært að afgreiða svona mál, sem er milljónamál, á svo skömmum tíma og hér er um að ræða.