17.05.1949
Efri deild: 112. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 825 í B-deild Alþingistíðinda. (1285)

180. mál, fiskiðjuver í Reykjavík

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Eins og ég gat um í gær, gat ég ekki lofað afgreiðslu á þessu máli í sjútvn. Málið hefur fengið sáralitla afgreiðslu á þingi og skiptir þó mörgum millj. Ég mun því ekki sjá mér fært að fylgja málinu út úr d. Ég tel, að þeir, sem byggðu þetta fyrirtæki án heimildar, ættu eins að geta selt það án lagaheimildar. Ég mun því ekki verða með frv.