11.05.1949
Neðri deild: 106. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 849 í B-deild Alþingistíðinda. (1321)
203. mál, skemmtanaskattur og Þjóðleikhús
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls benti ég á, að farið væri allharkalega að félagsheimilasjóði, sem stofnaður var fyrir rétt tveimur árum síðan, í þessu í frv. Ég taldi, að frv. gengi óþarflega langt í því að rýra tekjur sjóðsins og tekjumöguleika hans. Hins vegar hefur verið lýst yfir þeirri nauðsyn að tryggja aukið fjármagn til þess að koma í veg fyrir, að bygging þjóðleikhússins tefðist meira fyrir sakir fjárskorts. Þó að menntmn. hafi ekki að öllu leyti orðið við óskum mínum til breyt. á frv., þá hygg ég, að hún hafi þó lagfært það svo mjög, að ég geti talið mér fært að verða við samþykkt þess. Höfuðtilgangur menntmn. með þessum till. sínum er að leitast við að tryggja þetta tvennt: Annars vegar að tryggja það, að unnt reynist að ljúka nú byggingu þjóðleikhússins og hins vegar að tryggja, að tekjur félagsheimilasjóðs séu ekki rýrðar um of. Það hefur orðið að samkomulagi innan n. að leggja til, að önnur hlutföll yrðu nú tekin upp um skiptingu skattsins en nú er, þannig, að til þjóðleikhússins renni 50% af honum, 25% til byggingarsjóðsins og 25% til rekstrarsjóðsins, en áður var það þannig, að hlutur þjóðleikhússins var 40% samtals, en þá var ekki gert ráð fyrir, að neitt af því færi í byggingarsjóðinn, af því að 1947 var álitið, að byggingarsjóðurinn hefði nægilegt fjármagn til þess að hægt væri að fullgera byggingu hússins: Ég hefði hins vegar álitið það réttara að láta byggingarsjóðinn hafa 30% af skattinum, en rekstrarsjóðinn 20%, af því að ekki er neitt um það vitað enn, hvernig rekstrinum verður hagað né heldur hvenær hann hefst, en það mun alltaf vera einhver tími þangað til rekstur hússins getur hafizt. Þess vegna álít ég það ekki vera svo hættulegt að leggja til, að rekstrarsjóðnum verði ætluð 20% af skattinum, en byggingarsjóðurinn í þess stað látinn fá því meira, eða 30%.
Hæstv. menntmrh. hefur flutt brtt., þar sem hann leggur til, að 35% renni í rekstrarsjóðinn í staðinn fyrir 25%. Ég ætla ekki að fara að rökræða þessa till. hæstv. ráðh., enda er hann hér ekki til staðar. En mín rök eru þau, að það liggur ekki neitt fyrir um rekstur þjóðleikhússins, og þess vegna er reksturinn ekkert aðalatriði enn sem komið er, heldur er aðalatriðið hitt, að tryggja það, að byggingu hússins verði lokið sem allra fyrst.
Samkv. till. n. er ætlazt til, að félagsheimilasjóður fái nú 40% af skemmtanaskattinum, en það þýðir með öðrum orðum, að hlutfall hans sé lækkað um 10% frá því, sem nú er. Ég tel því, að þetta sé hrein neyðarráðstöfun, en vil samt ekki loka augunum fyrir þeirri brýnu þörf, að byggingu þjóðleikhússins, sem á sér nú um 20 ára byggingarsögu að baki, sé nú hraðað og lokið sem fyrst. Þess vegna vil ég ekki leggja stein í götu þess að tryggja tekjustofn, til þess að hægt sé að ljúka verkinu sem fyrst. Hæstv. ráðh. telur, að hér sé um of lágt hlutfall að ræða til þess að skapa nokkrar líkur fyrir því, að hægt sé að ljúka byggingunni fyrir. En ég verð nú að segja það, að þó að lánamarkaðurinn sé að ýmsu leyti þröngur núna, þá trúi ég því þó varla, að þegar þessa stofnun vantar 3 millj. kr. til þess að ljúka við bygginguna, þá sé ríkisstj. í vandræðum með að fá fé að láni til þeirrar lúkningar, þegar það lán er eins vel tryggt og hér er. Samkvæmt till. n. eru byggingarsjóði þjóðleikhússins tryggðar 600 þús. kr. tekjur á ári, það er að segja, það er hægt að greiða þetta lán, sem nauðsynlegt er, á 5 árum. Það virðist því ekki vera nein frágangssök fyrir lánastofnanir að lána þetta fé, jafngóða tryggingu og þær hafa. Ég hygg því, að með þessum till. sínum hafi menntmn. sýnt virðingarverðan skilning á nauðsyn þess að afla tekna handa byggingarsjóði þjóðleikhússins án þess að tekjur félagsheimilasjóðs væru um leið rýrðar um of. — Ég sé ekki ástæðu til þess að ræða frekar um félagsheimilasjóð að þessu sinni, en vil aðeins taka það fram út af því, sem hæstv. menntmrh. sagði um afstöðu stjórnar sjóðsins til þessa frv., — hæstv. ráðh. sagði, að stjórn félagsheimilasjóðs hefði frekar mælt með þessu frv., — að mér er ekki kunnugt um þessa afstöðu stjórnarinnar. Ég hef talað við suma af þessum mönnum, og þeir hafa tjáð mér, að þeir séu tregir til þessara breytinga. Hins vegar er það þannig, að bréf frá stjórn félagsheimilasjóðs til menntmrn. er vægast sagt mjög auðmjúkt, því að þar liggur við, að það sé fúslega játað af hennar hálfu að skipta sjóðnum bara upp. Hins vegar er þar á greinargóðan hátt rætt um þörfina á því að efla sem mest félagsheimilin úti á landi. Það er sagt, að 94 umsóknir liggi nú fyrir um styrk úr sjóðnum, og einnig er þar skýrt frá því, að 39 félagsheimili séu nú í byggingu víðs vegar á landinu.
En aðalatriðið er það, að n. hefur afgr. þetta mál þannig, að nokkrum hluta tilgangsins er náð, sem sé að tryggja leið til þess að hægt sé að ljúka byggingu þjóðleikhússins sem fyrst, án þess þó að ganga um of á rétt fólksins úti á landsbyggðinni, og þó að mér sé mjög annt um félagsheimilin, vil ég þar fyrir ekki kasta steini í götu stuðnings við þjóðleikhúsbygginguna. Mér eru það mikil vonbrigði, hversu mjög byggingarkostnaðurinn hefur farið fram úr áætlun og hvernig sú áætlun hefur verið gerð, og því miður óttast ég það einnig, að sú áætlun, sem nú hefur verið lögð fram, sé óábyggileg, og þess vegna taldi ég varhugavert að breyta hlutfallinu við skiptingu skattsins og láta félagsheimilasjóð sitja við skertan hlut. Samt vil ég vænta þess, að þetta fari betur en á horfist og að byggingu verði að fullu lokið fyrir þetta fé og einnig, að unnt verði að láta það fé, sem nú er ætlað til rekstrarsjóðs, hrökkva fyrir rekstrinum, en það er annars mikið á huldu, hvernig þeim rekstri verður hagað, enda höfum við litla reynslu í þeim efnum. En þess er að vænta, að þessi tekjustofn, 600 þús. kr., nægi.
Að endingu vil ég svo vænta þess, að málið nái fram að ganga á þessu þingi. Og þó að margir hv. þm. séu ekki ánægðir með, að hér skuli vera höggið skarð í sjóð félagsheimila útí á landi, þá höfum við þó ekki átt gott með að komast hjá því, nema að tefja þá fyrir lúkningu byggingar þjóðleikhússins.