12.04.1949
Sameinað þing: 65. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1070 í B-deild Alþingistíðinda. (1430)

42. mál, fjárlög 1949

Páll Zóphóníasson:

Ég hefði talið, að þessi liður mætti falla niður og að breyta ætti húsaleigul. þannig, að bæirnir sjálfir kostuðu húsaleigunefndirnar. Með því að sú lagabreyt. var ekki gerð, tel ég ekki fært að fella þennan lið niður. Það er á valdi ráðh. að ákveða laun þeirra, og þess vegna segi ég já.