12.04.1949
Sameinað þing: 65. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1071 í B-deild Alþingistíðinda. (1437)

42. mál, fjárlög 1949

Gísli Jónsson:

Ég vil taka það fram, að þessi lækkun er gerð vegna þess, að viðkomandi læknum hafa verið greidd hærri laun en launal. ákveða, án þess að sérstök heimild sé til fyrir því. Fjvn. vill þess vegna leiðrétta þetta, þar sem hæstv. menntmrh. hefur greitt þetta úr ríkissjóði án heimildar, og segi ég því já.