12.04.1949
Sameinað þing: 65. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1080 í B-deild Alþingistíðinda. (1465)

42. mál, fjárlög 1949

Steingrímur Steinþórsson:

Ég vil aðeins geta þess, að samkv. því, sem kom fram við umr. um fjárlagafrv., er það ómótmælanlegt, að þessi liður getur ekki orðið lægri en 770 þús. kr. í framkvæmd, og þess vegna hlýt ég að segja nei við þessari brtt.