15.11.1948
Efri deild: 15. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1287 í B-deild Alþingistíðinda. (1608)

46. mál, eyðing svartbaks

Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég vildi, að atkvgr. um þetta frv. færi fram með nafnakalli. Ég hef aldrei tekið þátt í atkvgr. um þetta mál áður og hef heldur ekki haft ástæðu til þess, en mér finnst, að þetta sé harkaleg aðferð, sem hér er gert ráð fyrir að beita við dráp á svartbak. Mér finnst hér vera mjög ómannúðlega að farið og hef alltaf verið þeirrar skoðunar, og ég mun sitja hjá við atkvgr.