11.12.1948
Efri deild: 30. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1350 í B-deild Alþingistíðinda. (1689)

80. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna

Steingrímur Aðalsteinsson:

Herra forseti. Eins og hv. þm. Barð., form. sjútvn., hefur tekið fram, hefur n. ekki enn þá afgr. þetta mál frá sér, og liggur ekki fyrir nál. Ég vil aðeins taka fram, að ég er andvígur ýmsum meiri háttar atriðum í frv. eins og það liggur fyrir. En í trausti þess, að takast megi að ná samkomulagi í n. og við hæstv. ríkisstj., mun ég ekki fara að ræða þann ágreining, sem fyrir hendi er, við þessa umr., en geymi mér það til 3. umr. eða get sparað mér það, ef samkomulag næst um einstakar brtt.