11.12.1948
Efri deild: 30. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1351 í B-deild Alþingistíðinda. (1692)
80. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna
Gísli Jónsson:
Út af fyrirspurn hv. 3. landsk. vil ég leyfa mér að upplýsa, að það er ósk hæstv. ríkisstj. sjálfrar, að þessi umr. fari fram hér í dag. En ég skal út af þessu gefa þær upplýsingar, að vegna þess að hér er um mjög þýðingarmikið mál að ræða, taldi n. skyldu sína að nota heldur tímann til þess að fá samkomulag um þýðingarmestu atriði frv. en að hafa kannske þýðingarlausar umr. um málið í stað þess að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Það hefur ekki unnizt tími til þess að komast að þessari niðurstöðu, því að þetta var afgr. á síðustu nóttu, og töldum við þessa aðferð betri. Úr því að þurfti að hraða svo málinu, þurfti nauðsynlega að hafa 2. umr. í dag. Ég vil benda hv. 3. landsk. á það, að þótt komið hefði verið nál. og síðan veigamiklar brtt. bornar fram við 3. umr., hefði málið staðið á sama stigi og þótt þessu hefði öllu verið frestað til 3. umr. Þetta er ástæðan fyrir því, að n.
hefur ekki viljað skila klofnu áliti, meðan von væri um að fá samkomulag um veigamestu atriðin.