15.12.1948
Efri deild: 34. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1376 í B-deild Alþingistíðinda. (1721)

103. mál, bráðabirgðarfjárgreiðslur úr ríkissjóði 1949

Páll Zóphóníasson:

Enda þótt það sé til skammar fyrir hæstv. ríkisstj. að þurfa að láta leggja þetta frv. fyrir þingið og til skammar fyrir meiri hl. Alþ. samþ. það í fyrra, að þingið skyldi ekki koma saman fyrr en 11. okt., svo að ekki væri hægt að afgr. fjárl. fyrir nýár, þá held ég, að ég verði samt sem áður að neyðast til þess að segja já, eftir að komið er í það óefni sem nú er.