07.12.1948
Neðri deild: 28. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1417 í B-deild Alþingistíðinda. (1817)

83. mál, almannatryggingar

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Við 1. umr. þessa frv. gerði hv. frsm. meiri hl. heilbr.- og félmn. ráð fyrir því að geta við 2. umr. gefið nánari upplýsingar um það, hve vænta mætti mikillar lækkunar á áhættuiðgjöldum samkv. 113. gr. laganna, og vil ég leyfa mér að óska frá honum upplýsinga um það mál.