27.01.1949
Efri deild: 49. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1477 í B-deild Alþingistíðinda. (1957)
74. mál, kirkjugarðar
Björn Ólafsson:
Ég þakka n. fyrir það að hafa lagt til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir. Ég verð að segja, að ég sé ekki frekar, en síðasti ræðumaður, að sé mikill munur á þessum till., sem hér er um að ræða. Að mínu áliti verður ekki í náinni framtíð þörf fyrir breyt. á þessum ákvæðum, sem frv. gerir ráð fyrir, vegna þess að söfnuðum fjölgi í Reykjavík. Hins vegar má segja, að sú tilhögun verði trygging fyrir því, að þetta verði árekstralaust, ef til þess kemur síðar. Ég mun að sjálfsögðu greiða atkv. með frv. eins og það er, ef þdm. samþ. það breytingalaust, en til vara mun ég greiða atkv. með þeirri till., sem hér liggur fyrir.