14.12.1948
Neðri deild: 34. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1483 í B-deild Alþingistíðinda. (1989)
99. mál, skattgreiðsla Eimskipafélag Íslands
Ásgeir Ásgeirsson:
Fundurinn er nokkuð þunnskipaður, og það er nokkur ágreiningur í þessu máli, sem að vísu er ekki alveg nýtt. Við þekkjum það allir, um hvað er deilt í þessu máli. Ég var að hugsa, hvort ætti að biðja að taka málið af dagskrá. En þar sem ágreiningnum er svo háttað sem komið hefur fram vegna ummæla eins þess nm., sem tók ekki þátt í flutningi frv., tel ég enga hættu að láta frv. ganga til atkv., svo að það verði samþ. til 2. umr. Í n. verður haldinn fundur um málið, þó að ekki komi ósk nema frá einum nm.