18.12.1948
Efri deild: 41. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í B-deild Alþingistíðinda. (209)

93. mál, tollskrá o.fl.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Það er ekki um neinar verulegar breyt. að ræða á þessu frv., a.m.k. eru þær ekki orðnar að minni tilhlutan. Og ég hélt satt að segja, að málið þyrfti ekki hingað að fara til hv. d., en mér var bent á, að það hefði verið leiðrétt einhver prentvilla í frv. og þess vegna hefði það þurft að fara til þessarar hv. d. á ný.