15.02.1949
Neðri deild: 65. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1525 í B-deild Alþingistíðinda. (2105)

127. mál, sala á steinolíu, hráolíu o.fl.

Atmnrh. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég þakka hv. n. fyrir, að hún hefur tekið mál þetta að sér til flutnings, og skal ég ekki ræða um efnishlið þess út af fyrir sig. En ég skal taka fram viðvíkjandi reglugerðinni, að ég mun að sjálfsögðu taka til athugunar og framkvæmda þessar leiðbeiningar frá hv. allshn. um reglugerðina, því að ég get fallizt á, að þess sé fullkomlega þörf að setja um þetta reglugerð.