25.02.1949
Neðri deild: 71. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1527 í B-deild Alþingistíðinda. (2122)

128. mál, bæjarstjórn í Keflavík

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Herra forseti. Ég get skírskotað til nál. um þetta mál, en þar er drepið á þau atriði, sem máli skipta. Meiri hl. n., sem tók þátt í afgreiðslu málsins, mælir með því, að frv. verði samþ. með brtt. á þskj. 387. Hv. þm. Siglf. var ekki staddur á fundi n., þegar málið var tekið fyrir, svo að mér er ókunn afstaða hans til þess, en ég geri samt ráð fyrir, að hann muni ekki vera mótfallinn samþykkt frv. Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um málið.