17.12.1948
Efri deild: 40. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í B-deild Alþingistíðinda. (218)

66. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Frsm,. (Guðmundur Í. Guðmundsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur athugað þetta frv., og leggur meiri hl. n. til að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.

Fyrir nokkrum dögum var hér á ferðinni frv. um mikið til sama efni, og þær athugasemdir og sú grein, sem ég gerði þá fyrir því máli, vænti ég, að geti skoðazt sem fullnægjandi framsaga um þetta, og vil ég vísa til þess, sem ég sagði þá.

Við þetta frv. hefur komið fram brtt. frá 1. þm. N-M. og brtt. við hana frá öðrum þm. Ég vil mælast til, að hv. þm. taki þessar brtt. aftur til 3. umr., ef eitthvert tóm kynni þá að gefast til þess að athuga þær á milli umræðna.